Eftir ítrekuð fósturlát þráir Edda tilbreytingu. Hún er orðin þreytt á vinnunni, íbúðinni, matarboðunum með vinkonunum og eilífum óléttutilkynningum þeirra … öllu. Þegar hún sér litla eyju á Austfjörðum auglýsta til sölu sannfærir hún Atla um að þar geti þau byrjað nýtt líf.
Á Varpey vex allt og dafnar, björgin eru full af fugli, brekkurnar þaktar berjalyngi og hafið í kring krökkt af fiski. Edda og Atli koma sér fyrir í litla íbúðarhúsinu og hefjast handa við að breyta hlöðunni í gistiheimili.
Þegar Edda tekur að sjá hvítklæddri konu bregða fyrir telur hún fyrst að sér hljóti að hafa missýnst. Smám saman verður hún þó sannfærð um að þau séu ekki ein á eyjunni heldur deili henni með einhverjum sem vilji þeim illt, einhverjum sem hefur bæði líf og dauða í hendi sér.
IRPA
Þegar ókunnug læða tekur að venja komur sínar heim til viðskiptafræðingsins Unnar veit hún nákvæmlega hvernig hún á að leysa vandann. Innan skamms stendur eigandinn, ung og illa tilhöfð kona að nafni Ásta, á tröppunum hjá henni með ferðabúr. Daginn eftir birtist Edit þó aftur og gýtur agnarsmáum kettlingi í rúmi Unnar.
Í kjölfarið tekst einlæg vinátta með Unni og Ástu og smám saman hleypa þær hvor annarri inn í sína myrkustu kima, áföll og ástarsambönd. Þegar ógn steðjar að standa þær saman – jafnvel þótt það kosti ósegjanlega glæpi.
Gestir er blóðugur spennutryllir eftir meistara hrollvekjunnar, Hildi Knútsdóttur, sem áður hefur sent frá sér nóvellurnar Myrkrið milli stjarnanna, Urðarhvarf og Möndlu.
GESTIR
“Gestir er þaulhugsuð spennusaga og vönduð eins og aðrar bækur Hildar sem sýnir enn og aftur að þegar kemur að sálfræðitryllinum á hún sér fáa jafningja hér á landi. Þetta er feminískur sálfræðitryllir sem segir mjá.”
“Eins og með fyrri bækur Hildar var ómögulegt að leggja bókina frá sér; ég las hana í einum rykk. [...] Þetta er ein af þessum bókum sem festist í huga manns löngu eftir að síðasta síðan er lesin.”
KASIA OG MAGDALENA
Magdalena er í haldi lögreglu, ötuð blóði. Tveir menn létu lífið á heimili hennar fyrr um kvöldið, að því er virðist með voveiflegum hætti. Í yfirheyrslum gefur Magdalena lítið upp um atburði kvöldsins því lögreglan má alls ekki komast að því að hún var ekki sú eina sem slapp lifandi út úr íbúðinni.
Hildur Knútsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1984. Hún skrifar bækur fyrir bæði börn og fullorðna sem og leikrit og smásögur. Hildur er einna helst þekkt fyrir furðusögur og uggvænlegar hrollvekjur. Þó hefur hún einnig skrifað bráðfyndnar bækur í félagi við Þórdísi Gísladóttur sem fjalla um krísur í lífi nútímaunglingsins og hafa þær notið mikilla vinsælda.